Góð andleg orka og tilfinningalegt jafnvægi er eitt okkar allra mikilvægasta og sterkasta vopn þegar á móti blæs. Það getur verið krefjandi verkefni að ná góðum tökum á tilfinningalegu jafnvægi og viðhalda jákvæðri andlegri orku og því er mikilvægt að tileinka sér leiðir til þess.
Neikvæðar tilfinningar leiða til óskynsamlegra viðbragða, trufla rökhugsun og tæma orkubirgðir okkar hratt. Það er ríkuleg uppspretta orku og gleði að vera meðvituð um hvað skiptir okkur raunverulega máli í lífinu.
Hagvangur hefur í fjölmörg ár lagt áherslu á fræðslu og þjálfun sem snýr að Orkustjórnun starfsfólks. Orkustjórnun snýst um að byggja upp, viðhalda og endurnýja orku stjórnenda og starfsmanna þannig að þeim líði sem best í og utan vinnu.
Á þessum óvenjulegu og krefjandi tímum ætlum við að draga fram þann hluta Orkustjórnunar sem snýr að andlegu orkunni og tilfinningalegu jafnvægi, og bjóða upp á 60 mínútna vinnustofur í formi fjarfunds, bæði fyrir einstaklinga og hópa.
Markmið vinnustofunnar er að:
Auka vellíðan og orku á erfiðum tímum
Auka jákvæðni og skapa þannig besta liðið
Tileinka sér verkfæri til þess að stjórna eigin tilfinningum.
Fanga hugmyndir um hvernig megi fá fólk með sér í lið í jákvæðninni
Átta sig á því hvað hleður okkur jákvæðri orku og stuðlar að jákvæðum tilfinningum
Átta sig á fórnarkostnaði við það að dvelja of lengi við neikvæðar tilfinningar
Endilega hafið samband fyrir nánari upplýsingar - gyda@hagvangur.is