Persónuleikamat og einstaklingsviðtal í vikunni 14. - 18. nóvember.
Vinnustofa 1 - Áskoranir stjórnenda 23. nóvember kl. 9:00 – 13:00
Vinnustofan fjallar um hlutverk millistjórnandans og dagleg viðfangsefni hans í tengslum við stjórnun fólks. Kynntar og æfðar eru hagnýtar leiðir sem stjórnendur geta nýtt til að virkja og hveta starfsmenn sína.
- Millistjórnendur, hlutverk þeirra og áhrif, s.s. markmiðasetning, skipulagning, hvatning, upplýsingamiðlun og ákvarðanataka.
- Ráðningarferli og mat á umsækjendum, starfsgreining, öfllun umsækjenda og atvinnuviðtöl.
- Móttaka og þjálfun nýliða.
- Frammistöðumat, endurgjöf og hvatning starfsmanna.
- Þjálfun starfsmanna.
Vinnustofa 2 - Leiðtoginn og liðsheildin 30. nóvember kl. 9:00 – 13:00
Vinnustofan fjallar um leiðtogann, þjónandi forystu og sterka liðsheild. Stjórnendur fá þekkingu og hagnýt tæki til að byggja upp sterka liðsheild og skilvirka teymisvinnu í sínum teymum.
- Leiðtogi vs. stjórnandi
- Þjónustuhlutverk stjórnandans
- Hvernig vinnum við starfsfólk á okkar band og löðum fram það besta í hverjum starfsmanni?
- Uppbygging liðsheildar
- Skilvirk teymi
Vinnustofa 3 - Samskipti og erfið starfsmannamál 7. desember kl. 9:00 – 13:00
Vinnustofan fjallar um árangursríkar leiðir til að takast á við erfið starfsmannamál s.s. samskiptavanda, agamál og óánægju.
- Ábyrgð einstaklinga þegar kemur að samskiptum og mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin samskiptatækni
- Farið yfir mikilvægi sjálfstrausts þegar kemur að stjórnun og samskiptum almennt og unnið með sjálfstraust þáttakenda og sjálfsuppbyggingu.
- Farið vel yfir rætur samskiptavanda.
- Áhrif tilfinninga og viðbrögð í samskiptum.
Staður: Hagvangur, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Ef óskað er eftir geta þátttakendur bætt við markþjálfunartímum hjá ráðgjafa til að fylgja þjálfuninni eftir.
Leiðbeinendur: Sveina Berglind Jónsdóttir, Geirlaug Jóhannsdóttir og Leifur Geir Hafsteinsson.
Nánari upplýsingar og skráning: sveina@hagvangur.is
til baka